Við rifjum upp hluta þáttar sem við gerðum í október 2023 sem fjallaði um stöðuna á leigumarkaði. Hvers vegna er svona erfitt að óska eftir meðleigjanda? var sennilega rannsóknarspurningin. Hvers vegna er það talið betra að eiga en að leigja á Íslandi og af hverju er það þannig? Við berum saman stöðu íslendinga og aðfluttra á leigumarkaðnum og ræðum við sérfræðinga.
Og svo förum við inn í nútímann, er þetta jafn slæm staða, betri eða verri en fyrir tveimur árum? Við ræðum við Jónas Atla Gunnarsson hagfræðing hjá HMS.
Kolbeinn Rastrick hefur þó leika á rýni í nýjustu mynd norska leikstjórans Joachim Trier, Sentimental Value.