Vibe coding og vibe working: Nýja verklagið með gervigreind
Í þessum þætti kafa Sverrir og Pétur ofan í hugtak sem hefur verið að fara sigurför um tækniheiminn: „Vibe coding“ eða fílíngsforritun eins og þeir völdu að kalla það á íslensku.
Við veltum því fyrir okkur hvernig vinnan okkar breytist þegar við hættum að skrifa hvern staf og byrjum þess í stað að stýra gervigreindinni eftir „vibe-inu“.
Sverrir fagnar því jafnframt að tvær af spám hans fyrir árið 2026 eru þegar farnar að rætast, þótt árið sé varla byrjað.
Í þættinum er farið yfir:
Vibe coding og fílíngsforritun: Hvað þýðir það þegar forritun snýst meira um samskipti og sýn heldur en smáatriðin?
Cursor, Replit og Lovable: Við ræðum tækin sem eru að gera fólki kleift að búa til flottan hugbúnað á met-tíma án þess að kunna hefðbundna forritun.
Vibe working: Hvernig gervigreind gerir okkur kleift að taka að okkur verkefni langt utan okkar sérfræðisviðs – hvort sem það er markaðssetning, sala eða hönnun.
Hættan á „glærusloppi“: Pétur segir frá reynslu sinni af Gamma.app sem býr til glærur út frá texta og við ræðum hvað gæti farið úrskeiðis.
Nýtt hlutverk starfsmannsins: Mun sérþekking skipta minna máli en hæfnin til að ritstýra því sem gervigreindin skilar?
Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.
Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri og minnka bilið, kíktu þá á námskeiðin okkar: https://javelin.is/is/courses