Listen

Description

*VARÚÐ: HÖSKULDARVIÐVÖRUN FYLGIR ÞÆTTINUM* Draugurinn hefur sigrast á mongólunum … en hann á eftir eitt ævintýri í dýragarðinum á Iki Eyju.
Það er rétt hlustendur kærir, í þessum þætti ætlum við að taka fyrir aukapakkann Iki Island sem kom út árið 2021. Ghost of Tsushima heldur áfram að fá geggjaðar viðtökur og ef Director’s Cuttið er ekki komið í safnið þitt þá skaltu laga það hið snarasta.
Arnór Steinn og Gunnar hafa af nægu að taka. Er þetta góður aukapakki? Hvernig eru viðbæturnar? Hvernig er sagan?
Við mælum allavega hiklaust með þessum frábæra aukapakka - til viðbótar við afspyrnu góðan leik.
Eru allir bikararnir frá Iki eyju komnir í þitt safn? Láttu okkur vita!
Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafabréfa.