Það er aftur komið að því! Arnór Steinn kynnir leik fyrir Gunnari og Gunnar kynnir leik fyrir Arnóri.
Í þetta skiptið er smá þema, báðir leikirnir gerast úti í geimi!
The Outer Worlds kom út í október 2019 og er RPG leikur frá Obsidian. Sögusviðið er stjörnuþokan Halcyon sem er "nýlenda" jarðarinnar í himingeimnum. Skipið Hope, með hundrað þúsund manns frosin um borð, fór frá jörðinni til Halcyon en eitthvað bilaði á leiðinni. Skipið reikaði rafmagnslaust um himingeiminn í nærri því 70 ár þangað til að vísindamaðurinn og útlaginn Phineas Welles braust um borð og frelsaði einn farþega úr frystikistunni - þig! Hefur þú það sem þarf til að bjarga Halcyon frá glötun?
No Man's Sky er mjög óhefðbundinn leikur sem kom út árið 2016. Útgáfan var mjög umdeild en leikurinn var nokkuð langt frá því að vera það sem var lofað. Reiði og vonbrigði tölvuleikjaspilara var svo gífurleg að tölvuleikjamarkaðurinn breyttist að miklu leyti. Í dag er leikurinn talsvert betri og er eiginlega orðinn það sem lofað var í byrjun. Þú leikur the Traveller sem vaknar á fjarlægri plánetu með ónýtt geimskip. Þú þarft að laga skipið og hefur svo risa stóra stjörnuþoku til að skoða, safna allskonar efnivið, læra geimverutungumál og stækka skipið þitt!
Hefur þú spilað annan hvorn?
Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!