Hvað hefur Gunnar spilað sem Arnór hefur ekki spilað? Hvað hefur Arnór spilað sem Gunnar hefur ekki spilað?
Spjall vikunnar er einhvernveginn á þessa leið. Gunnar kynnir fyrir Arnóri "guðaleikinn" Black & White, en sá leikur er úr smiðju mannsins á bakvið Fable seríuna. Þar er spilarinn guð sem þarf að redda sér fylgjendum og búa til heim - þú ræður hvort þú ert vondur eða góður guð.
Arnór kynnir fyrir Gunnari Hotline Miami sem er ofbeldisfull neonsýra. Grímur, byssur, blóð og gjörsamlega ómögulega erfið spilun. Svona ... í stuttu máli.
Hefur þú spilað annan hvorn?
Lag: Aries Beats