Listen

Description

VARÚÐ! LÉLEG HLJÓÐGÆÐI! Við lentum í smá tæknivandræðum sem uppgötvuðust ekki fyrr en við vorum búnir að taka upp en við vildum leyfa hlustendum að fá að ráða hvort þeir vildu hlusta á þáttinn eða ekki.

Við tókum meðal annars umræðuna um stóra Onlyfans málið og við komumst að því að Jón Þór er með Onlyfans aðgang og er að hugsa um að fara að selja sitt eigið efni. Við ræddum einnig um foreldrahlutverk Freyju Haralds, heimsmetahornið var á sínum stað, við spáðum aðeins í spilin varðandi flugfélagið Play og að sjálfsögðu tókum við fyrir kommentakerfið.

Allt þetta og miklu fleira í sjötta þætti Alls ekki á ykkar vörum. Missið ekki af honum!