Í þessum þætti er rætt við Daniel Kish um umferli og aðgengismál.
Daniel Kish er framkvæmdastjóri World Access for the Blind og missti sjón á fyrsta æviári sínu. Hann sinnir kennslu og þjálfun um víða veröld og framlag Daniels til rannsókna á skynjun ýmiskonar er víðtækt. Á ferli sínum hefur hann vakið mesta athygli fyrir færni og kennslu á sviði hlustunar, í því að skynja rými og í því að nýta til þess endurkast hljóðbylgna (echolocation).
Síðustu árin hefur það verið markmið Daniels að deila reynslu sinni og þekkingu á þessu sviði með blindu og sjónskertu fólki um allan heim.