Björg Magnúsdóttir er handritshöfundur og átti hún meðal annars þátt í að skrifa sjónvarpsseríurnar Systrabönd og Ráðherrann. Hafsteinn fékk Björgu til sín og ræddi við hana um handritagerð, persónusköpun og bransann.
Í þættinum ræða þau einnig ítarlega Systrabönd, hversu magnaður karakter Tony Soprano er, hvað gerir aðalpersónur áhugaverðar, Dexter og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni, Subway og Sambíóanna.