Listen

Description

Stefán Atli Rúnarsson er markaðssérfræðingur og séní á sviði gervigreindar með ómælanlega ást á fyrstu tveimur bíómyndunum í Back to the Future-þríleiknum.

Kjartan og Tommi stóðust ekki mátið að bjóða honum í stúdíóið og renna léttilega og létt skemmtilega yfir ævintýrin hjá Marty McFly, Doc Brown og vinum - og þessi allsvakalegu áhrif sem ‘Bobbarnir’ (Gale og Zemeckis) höfðu á poppkúltúrinn.

Þá er gráupplagt að smella sér í Nike-skóna, botna bensíngjöfina og hverfa aðeins aftur til fortíðar ‘Aftur til framtíðar’ myndanna stórvinsælu. Einnig dúkka upp skrautlegar baksviðssögur og stúderingar á framtíðinni, tækni og gervigeind.

(og ath.! Ofangreindur texti var skrifaður án aðstoðar gervigreindar…)

Yfir í…

Efnisyfirlit:

00:00 - Beint í Atla-safnið

03:21 - Spielberg-stimpill á þessu

10:10 - Tímaflakk og sala á DeLorean

18:00 - Rick & Morty tengingin

24:30 - Sponsin á skjánum

28:14 - Crispin Glover og Eric Stoltz vesenið

32:56 - Michael J. Fox

38:32 - ‘Doc Brown Saves the World’

40:16 - ‘Hot takes’ og þriðja myndin

48:02 - Tæknin í framtíðinni

55:52 - “Tíminn er hringur”

01:02:00 - ‘Post-credits’ senur