Listen

Description

Friðrik, Kjartan og Tommi ræða nýjasta afsprengi Óskarsverðlaunahafans Bong Joon-Ho. Stórmyndin Mickey 17 með Robert Pattinson í helstu hlutverkum er merkilega aðgengileg bíómynd sem er þó alls ekki allra.

Myndin hefur í heildina hlotið jákvæðar viðtökur en hefur margur maðurinn deilt um hvort sumt sé hreinlega of yfirdrifið eða ýkt í pólitísku ádeilunni sem á boðstólnum er. Það er svo sem nóg um kostulega vitleysu en hittir myndin tilfinningalega í mark?

Bíófíklar skoða þessa punkta og rýna í þetta rándýra sprell kóreska meistarans.

Efnisyfirlit:

00:00 - Jason Statham myndir…

02:40 - Ferillinn hjá Bong Joon-Ho

08:36 - Mickey 17, án spilla

19:02 - Pattinson púllar þetta

24:14 - Tundurspillar hefjast

34:00 - Helvítis matarboðið…

39:09 - 17 og 18

48:07 - Samantekt