Listen

Description

Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu.

Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þegar myndin leit fyrst dagsins ljós, eða svo segja sögurnar (enda voru Bíófíklar ekki á lífi á þeim tíma...). Það er ekki erfitt að ímynda sér hvers vegna, enda áhrifamikil ef ekki alræmd mynd með body-horror ívafi sem markaði mikilvæg spor á níunda áratugnum í sínum geira. Auk þess er framleiðslusagan vægast sagt óhugguleg.

Mætti jafnvel færa rök fyrir því að velgengni kvikmyndarinnar Obsession eigi einhverjar rætur að rekja til þessarar myndar. Á sinn hátt.

Hvernig varð þessi mynd fyrir valinu? Það skrifast nú auðvitað á Frikka fastagest og áframhaldandi tilraun hans til að skóla Kjartan í fjölbreytileika og fjöri hryllingsmynda á meðan Tommi glottir prakkaralega og klórar sér í hausnum yfir myndinni þegar loks kom að því að kíkja aftur á hana í fyrsta sinn í hundlangan tíma.

Hvort sem markmið Frikka sé að ganga endanlega frá geðheilsu Kjartans (við gleymum nú seint Meet the Feebles fíaskóinu...) eða dýpka kvikmyndasmekk hans á enn eftir að skýrast.

Þá skal bara leggjast aðeins í kennslu um viðbjóðslegt eignarhald og andsetja á sig heyrnartólin.

Efnisyfirlit:

00:00 - Hörð viðbrögð

10:04 - Átakanleg framleiðsla

28:07 - Einkennilegir tónar

39:00 - Samanburður við Obsession

53:52 - Frægustu senurnar

57:41 - Samantekt