Frosti Logason leysir Kristján Kristjánsson af og stýrir kraftmikilli umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um baráttuna við veiruna en hann segir að tímabært sé að leyfa veirunni að mynda hjarðónæmið.
Katrín Baldursdóttir oddviti Sósíalista í Reykjavík Suður og Einar Kárason rithöfundur og fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar um sósíalismann en sósíalistar segjast vilja skipta út samkeppni fyrir samvinnu.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður þingflokks Vinstri grænna og þingmaður í Norðausturkjördæmi, Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata og Birgir Ármannsson þingmaður úr Reykjavík og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins ræða um stöðu flokka í aðdraganda kosninga.
Pálmi Einarsson iðnhönnuður og hampbóndi á bænum Gautavík í Berufirði um hampinn en nú eru íslensk útgerðarfélög farin að skoða nýtingu hamps.