Listen

Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í dag eru gestirnir aðeins tveir. Í fyrrihlutanum er rætt við Drífu Snædal forseta ASÍ um ástandið í verkalýðshreyfingunni. Drífa hefur legið undir harðri gagnrýni félaga sinna og ekki hafa síðustu atburðir á skrifstofum Eflingar auðveldað henni lífið, við förum yfir þessa atburðarás, þessa miklu gagnrýni  og þau áhrif sem hún hefur á forsetann og hennar störf. 


Í seinni hluta þáttar kemur maðurinn sem situr stundum gegnt Drífu við samningaborðið en það er Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. Hugurinn er látinn reika um ábyrgð fyrirtækja á góðu samfélagi, um mikilvægi jöfnuðar og vinnumarkað sem verður æ háðari erlendu vinnuafli svo fátt sé nefnt.