Listen

Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Hildur Fjóla Antonsdóttir réttarfélagsfræðingur um Metoo og ofbeldismál en hún segir brotaþola í kynferðisofbeldismálum vitni í eigin málum.

Teitur Guðmundsson læknir og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar um öldrunarþjónustu en Teitur segir að uppsagnir munu á engan hátt koma niður á ummönun og þjónustu.

Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum um aðgerðir Kína í alþjóðlegu samhengi en svo virðist sem þessi öld muni einkennast af samkeppni Kína og Bandaríkjanna.

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands um kvenréttindamál en hún segir að staða kvenna sé betri hér en alls staðar annars staðar í heiminum.