Listen

Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

 

Í þessum þætti:

 

Lögreglumál

Soffía Sigurðardóttir, ein þeirra sem stendur að baki nýrri bók um Geirfinnsmálið fjallar um bókina, niðurstöður rannsóknar höfunda og framhald málsins en fjölda gagna hefur verið beint til lögreglu. Ný gögn halda áfram að berast um þetta 50 ára gamla mál.


Orku- og loftslagsmál

Geir Guðmundsson verkfræðingur fjallar um orkuöflun framtíðarinnar sem þarf að aukast um 30% á fáum árum til að standa undir orkuskiptum. Verður hægt að veðja á sólarorku og vind eða er okkur nauðugur einn kostur að trúa á jarðefnaeldsneytið áfram. Er rétt að bora eftir olíu og er loftslagsvandinn orðum aukinn?

 
Stjórnmál/efnahagsmál

Bjarni Benediktsson fyrrverandi fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherrafóru fyrir ríkisstjórninni sem aflétti gjaldeyrishöftum og knúði fram samninga við kröfuhafa íslenska bankakerfisins fyrir 10 árum. Þeir rifja upp málið í tilefni af ráðstefnu í næstu viku. Voru  þessir samningar  í  raun samningur aldarinnar.

 

Tungumál og gervigreind


Linda Ösp Heimisdóttir framkvæmdastjóri er dr. í málvísindum og vinnur að því að varðveita íslenskuna í rafrænum heimi með máltækni. Hún varpar ljósi á stöðu  smárra tungumála á tímum þar sem enskumælandi gervigreind tekur yfir upplýsingaflæði heimsins.