Listen

Description

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.

Í þessum þætti:

Trausti Fannar Valsson dósent í stjórnsýslurétti við HÍ um alþingiskosningar, kjörbréf og niðurstöðu kosninga en enn er mikil óvissa með úrslit þeirra.

Hildigunnur Thorsteinsson framkvæmdastýra hjá OR og Ingólfur Guðmundsson forstjóri Carbon Recycling um loftslags- og orkumá en gríðarlegir möguleikar eri í útflutningi á íslenskri þekkingu í orkugeiranum.

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins um vinnumarkaðinn en djúptækar samfélagsbreytingar virðast orsaka langtímaatvinnuleysi.

Björn Bjarki Þorsteinsson stjórnarformaður samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um öldrunarmál en kraftur þriðja geirans í velferðarmálum er ekki nýttur sem skyldi.