Bakkakot, Landspítali og krísa í konungshöllinni.
Í vikuuppgjöri Máls málanna rýnum við í hneykslið í Bakkakoti og viðbrögð ráðamanna við því. Ungmenni réðust á töframann í Garðabæ og lögregla hefur tekið upp nýstárlegar forvarnir með því að spila tölvuleiki í Roblox. Við ræðum enn eitt neyðarástandið á Landspítala og heyrum af loforði forsætisráðherra um fyrstu skrefin til að afnema verðtryggingu. Í Noregi er vart rætt um annað en krísuna í konungshöllinni vegna samskipta Mette-Marit krónprinsessu við barnaníðinginn Jeffrey Epstein.
Samhengi vikunnar á 20 mínútum