Drengirnir á jaðrinum og kerfi meðaltalsins.
Mál málanna rýnir í raunveruleika stráka í íslensku skólakerfi. Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, ræðir hvers vegna kerfið okkar er hannað fyrir „meðaltalið“ en bregst jaðartilvikunum. Við skoðum hvers vegna enginn vill kenna „erfiðu“ strákahópunum, af hverju stimplar og greiningar duga ekki án lausna og hvers vegna festan er það eina sem virkar þegar allt annað bregst.