Listen

Description

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktun um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka „upp þráðinn í aðildarviðræðum við Evrópusambandið“. Fyrsti flutningsmaður er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar en tillagan er forgangsmál flokksins á þessum þingvetri sem nýlega er hafinn.

Logi Einarsson mælti fyrir tillögunni þriðjudaginn 20. september. Ein af þeim spurningum sem hann þurfti að svara en gerði ekki er hvaða þráð eigi að taka upp. Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkisráðherra og forveri Loga í formannsstóli Samfylkingarinnar, pakkaði aðildarumsókninni ofan í skúffu.

Þegar vinstri­stjórn tók við völd­um í fe­brú­ar 2009 fékk Sam­fylk­ing­in al­gjört for­ræði yfir utanríkismálum. Stefn­an var tek­in á Brus­sel. Mik­il­væg hags­muna­mál, þar á meðal ör­ygg­is- og varnarmál, voru sett til hliðar. Allt sner­ist um aðild að ESB. Eft­ir góðan kosn­inga­sig­ur í apríl 2009 herti vinstri­stjórn­in róður­inn. Byggðar voru upp óraun­hæf­ar vænt­ing­ar. Full­yrt var að Ísland fengi sér­staka flýtimeðferð og gæti jafn­vel orðið eitt ríkja Evrópusambands­ins þegar árið 2012. Í stefnuræðu í maí 2009 full­yrti for­sæt­is­ráðherra að aðildarumsókn­in myndi stuðla strax að já­kvæðum áhrif­um á gengi krón­unn­ar og á vexti. Eft­ir því sem aðild­ar­ferl­inu miðaði áfram því meiri yrðu já­kvæðu áhrif­in. Ut­an­rík­is­ráðherra lýsti yfir „diplóma­tísk­um“ sigri eft­ir að ráðherr­aráð ESB samþykkti aðild­ar­um­sókn Íslands í júlí 2009. „Diplómatíski sig­ur­inn“ skilaði engu, allra síst í efna­hags­mál­um og ekkert gekk eftir af þeim fullyrðingum og loforðum sem forsætisráðherra setti fram í stefnuræðunni.