Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala eins og venjulega. Fram hefur ákveðið að segja Jóni Sveinssyni þjálfara upp störfum. Við ræðum Fram og gengi liðsins ásamt að spá í næstu leiki Bestu deildarinnar. KA heldur áfram að vinna evrópuleiki, HM kvenna er á sínum stað, Harry Kane til Bayern? Barcelona og meistaradeildin, Lengjudeildin og margt fleira og svo fréttir og slúður. Njótið helgarinnar.