Listen

Description

Pawel Bartozek fæddist í Póllandi og flutti til Íslands 8 ára gamall. 
Hann er stærðfræðingur sem hefur látið samfélagsmál til sín taka. En hann hefur ritað pistla á vefinn í fjölmiðla reglulega undanfarin 20 ár. Pawel er jafnframt  borgarfulltrúi. 
Í þessu viðtali ræðir Pawel um æsku sína í Póllandi og kommúnismann sem þar var yfir öllu. Vandamál þar var ekki skortur á peningunum heldur skortur á vörum. 
Einnig fáum við Pawel til að ræða líkindi og happdrætti. Borgar sig t.d að taka þátt í Lottó eða öðrum happdrættum? 

Þetta og margt fleira um líkindi og happdrætti í þessu áhugaverða viðtali.  


Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson.
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.