Listen

Description

Fókus kom saman og fór yfir VÍS bikarvikuna sem var að klárast, en þar unnu Haukar Breiðablik í úrslitaleik meistaraflokks kvenna. Þá er einnig farið yfir undanúrslit fyrstu deildar kvenna sem að rúlla af stað í kvöld með leik ÍR og KR í Breiðholti og Ármanns og Hamar/Þór í Kennó.

Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag eru ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur Baldursson og Margrét Ósk Einarsdóttir leikmaður og þjálfari hjá Fjölni.

Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway.