Örlítið er eftir af tímabilinu í Dominos deildunum en úrslitaeinvígin eru vel á veg komin og ráðast úrslitin á næstu dögum. Í podcasti vikunnar er spáð í spilin og síðustu leikir gerðir upp.
Gestur þáttarins er Máté Dalmay nýráðinn þjálfari Hamars í Hveragerði. Hann gerir upp árin með Gnúpverjum og segir frá því hvernig tækifærið hjá Hamri kom til.
Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur
Efnisyfirlit
1:30 - Maté tekur við Hamri
8:15 - Körfuboltaáhuginn byrjar á Flúðum
12:00 - Stofnfundur Gnúpverja fyrir GusGus ball
20:00 - Tímabilið í 1. deild með Gnúpverjum og framtíð liðsins
34:00 - Þjálfaraeinkenni - Léttleikandi Mike D’Antoni
37:00 - Næsta tímabil hjá Hamri og breytingar á reglum um erlenda leikmenn
44:20 - Einvígi Hauka og Vals rætt
52:10 - Einvígi Tindastóls og KR rætt
1.06:30 - Respect the Greatness
1.09:10 - #TheLastDance