Listen

Description

Í kvöld fer fram NBA nýliðavalið 2018 en í þetta skiptið er það sérlega spennandi fyrir okkur íslendinga. Ástæðan er sú að Bárðdælingurinn Tryggvi Snær Hlinason er talinn líklegur til að vera á meðal leikmanna sem valdir verða í eitthvert lið.

Þessi neyðarútgáfa af Podcasti karfan.is er því helguð NBA nýliðavalinu og umræðan mest á Tryggva Hlinasyni.

Gestur þáttarins er Arnar Guðjónsson núverandi þjálfari Stjörnunnar og fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla.

Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur

Efnisyfirlit:

2:00 - Hvernig gaur er Tryggvi Hlinason?

7:00 - Framfarir Tryggva

16:30 - Verður Tryggvi draftaður?

20:30 - Framtíðin eftir draft

30:00 - Pop-viðtal Arnars

33:20 - Fyrstu valréttirnir í Draftinu - Doncic eða Ayton?