Vigdís Fríða segir okkur frá spurningakönnun sem hún, ásamt Björk Gunnarsdóttur framkvæmdu fyrir Samtök grænkera.
Safnað var upplýsingum um viðhorf gagnvart veganisma í skólakerfinu. Spurningalistinn var gerður fyrir vegan foreldra sem eiga börn hjá dagforeldri, í leikskóla eða í grunnskóla.
Niðurstöðurnar voru afdráttarlausar og það er ljóst að mikilla úrbóta er þörf í skólakerfinu til þess að bæta úr aðstæðum vegan barna.
Intro: Promoe - These walls don't lie
Þátturinn er í boði Vegan búðarinnar
-
Grænkerið er hlaðvarp sem fjallar á mannamáli um hin ýmsu málefni grænkera, dýravelferð og umhverfismál. Finndu hópinn Grænkerið - hlustendavaktin á Facebook en þar finnur þú umræður um bæði þættina og almennt vegan líf.