Listen

Description

Í þessum þætti fékk ég til mín góða gesti en það voru þau Fannar Sveinsson og betri helmingurinn hans hún Vala.  Fannar gerði garðinn frægan í Hraðfréttum á sínum tíma en hefur undanfarið verið iðinn við leikstjórn og framleiðslu á fjölbreyttu sjónvarpsefni. 
Við ræddum allt milli himins og jarðar,  skrýtnar venjur Fannars voru uppljóstraðar og kynntumst Völu á skemmtilegan hátt.