Listen

Description

Friðrik Dór Jónsson þarf varla að kynna fyrir neinum en hann hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og hafa  mörg laganna hans náð að skipa sér stóran sess í huga og hjörtum landsmanna. Lísa Hafliðadóttir er hans betri helmingur en þau hafa verið saman nánast hálfa ævina og giftu þau sig eftirminnilega á Ítalíu árið 2018.   
 Frikki og Lísa eru miklir fagurkerar sem elska góðan mat og eiga það sameiganlegt að vera mikið keppnisfólk þar sem ófá spilakvöldin hafa farið úr böndunum þeirra á milli. 
Þetta var virkilega skemmtilegt spjall þar sem ég fékk að skyggnast aðeins inn í líf þeirra hjóna og ræddum við lífið og tilveruna og allt þar á milli.