Í þessum þætti tala ég við hana Söndru Grétarsdóttir.
Sandra kemur úr góðu umhverfi, umvafin góðu fólki og gegnur vel í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur.
Þegar hún svo missir barnungan son sinn hrynur veröldin eins og hún þekkir hana.
Ekkert foreldri á að þurfa að ganga í gegnum þannig missi en þarna er Sandra rétt um tvítugt.
Áður en hún veit af dregst hún inn í neyslu þar sem það verður hennar leið til þess að deyfa sársauka og söknuð.
Sandra fer hér á afar heiðarlegan og hugrakkan hátt yfir sína sögu og lýsir ferlinu frá dökkum heimi fíkniefnanna yfir í þá glæsilegu persónu sem hún er í dag.
Saga hennar snerti mig djúpt og kennir manni sitthvað um það sem skiptir máli í lífinu.
Sandra Grétarsdóttir er ein af oss 🙏
Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli 🙏