Í dag spjalla ég við mann sem hefur reynst mér persónulega mjög vel í mínum bata.
Eymundur Ingi Ragnarsson er alkóhólisti í góðum bata.
Hann fer hér á afar einlægan hátt yfir sína sögu.
Eymundur kemur inn á margt í spjallinu eins og hvers mikils virði það er að vera í góðum bata. Finna þessa svokölluðu hugarró og góð tengsl við fólkið sem hann elskar, góð tengsl við aðra alka í bata.
Ég er afar þakklátur honum Eymundi því hann átti sinn stóra þátt í þessu hlaðvarps verkefni hjá mér og hefur, eins og ég sagði, reynst mér afar vel.
Eymundur er einn af oss 🙏
Guð gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli 🙏