Listen

Description

Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við Háskólann í Agder í Noregi. Aron Gauti er með doktorsgráðu í skólaíþróttum frá Háskólanum í Stavanger og höfundur greinarinnar Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta. Aron Gauti hefur sinnt viðamiklum rannsóknum á skólaíþróttum í Noregi og var við kennslu við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík nú í desember. Þá hélt hann einnig opinn fyrirlestur um miðjan mánuðinn sem bar yfirskriftina Það á líka að fara fram nám í skólaíþróttum.

 

UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

 

UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

 

UM HR HLAÐVARPIÐ
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson.