Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Ebbi svokallaðar ABM (Account Based Marketing) herferðir sem eru þekktar fyrir vera einstaklega árangursíkar.
Fyrirtæki hafa margar leiðir til að búa til eftirspurn eftir vöru eða þjónustu. Ein slík leið eru svokallaðar ABM herferðir. Það sem einkennir ABM herferðir er hvernig markaðs- og söluteymi vinna saman að rannsóknarvinnu til að senda persónuleg skilaboð á mörgum miðlum samtímis til að umlykja markhópinn sinn og breyta í viðskiptavin.
Þeir félagar ræða sín á milli hvernig er best að nálgast slíkar herferðir út frá aðferðafræði, efnissköpun, notendaupplifun og tæknilegum atriðum til að ná sem bestum árangri.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing