Í þessum þætti af Gagnarök dusta Ómar og Ebbi rykið af skólabókunum í 101 markaðsfræði og ræða mikilvægi þess að vera með vel skilgreindan markhóp.
Hvort sem fyrirtæki eru í B2C eða B2B er það staðreynd að þau fyrirtæki sem fara í vel ígundaða rannsóknarvinnu og skilgreina markhópinn sinn eins vel og hægt er ná meiri árangri. Það gerir alla vinnu við að smíða skilaboð, efnisgerð og herferðir margfalt skilvirkari og árangursríkari. Svo er það bara skemmtilegra.
Mörg fyrirtæki skilgreina aldrei markhópinn sinn eða fara ekki lengra en "Konur, aldur 20 - 50 ára". Það er ágætis byrjun, en það er hægt að fara svo miklu dýpra og fókusera frekar á "áhuga" og "áhyggjur" / "pain points".
Þeir félagar ræða sín á milli af hverju það er svona mikilvægt að skilgreina markhópinn sinn ítarlega og hvernig er best að gera það.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing