Í þessum þætti af Gagnarök fara Ómar, Arnar og Ebbi yfir gervigreindartólið sem er á allra vörum - ChatGPT - og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi eins og að skrifa grein sem hljómar eins og Miley Cyrus eða búa til Metallica gítarriff og í markaðsstarfi við hugmyndavinnu, hönnun, textasmíði og margt fleira góðgæti.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing