Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar, Birgir, sérfræðingur í stafrænum lausnum, og Arnar, sérfræðingur í stafrænum miðlum, mikilvægi vefsíðunnar. Gamla góða vefsíðan er ekki að fara neitt og færa mætt rök fyrir því að þessi elska hafi aldrei verið mikilvægari.
Allar vefsíður hafa eitthvað markmið hvort sem það er vefsala, bóka fund, senda inn fyrirspurn og fleira. En eru allar vefsíður hannaðar til að ná þessu markmiði?
Þeir félagar ræða sín á milli hvað þarf að hafa í huga þegar smíða á vefsíðu og notendaupplifun sem nýtir gögn, greiningar, skýra stefnumótun við hönnun og forritun á vefsíðu sem skilar árangri.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing