Listen

Description

Í þættinum kynnumst við Lydíu Ósk, sem er annar stjórnanda hlaðvarpsins. Lydía segir frá lífi sínu og hvað hefur mótað hana og gert að þeirri manneskju sem hún er í dag.

Lydía er þriggja barna móðir, sálfræðingur og jógakennari.   Hún er sterk og dugleg kona með það markmið að minnka streituna í samfélaginu. Í æsku var hún ábyrgðarfullur nörd sem fannst hún ekki passa inn í hópinn í skólanum.

Lydía hefur mest alla ævina haft of mikið að gera og hefur tvisvar sinnum misst heilsuna, í fyrra skiptið vegna raka og myglu á heimilinu en í seinna skiptið vegna langvarandi streitu. Kulnunin breytti Lydíu heilmikið. Hún ákvað eftir það að skipta um starfsvettvang og hjálpa fólki í starfi sínu sem sálfræðingur. Einnig stofnaði hún fyrirtækið sitt Gott jafnvægi og heldur námskeið um streitu sem einnig heitir Gott jafnvægi.


Ert þú ekki örugglega að fylgja okkur á samfélagsmiðlum?

Í alvöru talað! á Instagram

Lydía (Gott jafnvægi) á Instagram

Gulla á Instagram

Stef þáttarins gerði Ingi Björn Ingason.