Bragi Valdimar Skúlason hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar í meira en tvo áratugi. Með skop, söng, framkomu á skjá og smekkleysu að eigin sögn. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann um götur borgarinnar með Haraldi „Halla“ Þorleifssyni þar sem þeir ræða allt frá þungarokki og jólalögum yfir í íslenskuna og gervigreind.
Það sem byrjaði sem tæknitilraun um aldamótin hefur á undarlegan hátt þróast í eitt vinsælasta jólaskrímsli landsins. Baggalútur.
Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.