Listen

Description

Við hefjum 5.þáttaröð með ógeði! Það er kannski viðbúið en mér finnst þetta samt óvenju ógeðfellt mál vegna þess að það inniheldur ill örlög dýra.  Það sat í mér þegar ég var krakki. Spakir menn eru kallaðir saman til að leika rannsóknarlögreglur í breskum sjónvarpsstíl þegar kindur taka að hrökkva upp af með ónáttúrlegum hætti á Litlu-Þverá í Húnavatnssýslu. Er illskeyttur ærsladraugur á ferðinni  eða mannlegt skrímsli?