Eldgos hófst milli Sýlingarfells og Hagafells upp úr klukkan tíu í gærkvöld. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að eldgosið sé á besta stað í vondri sprunguröð. Hann telur að sprungan sé hætt að lengjast. Hraunflæði hefur dregist verulega saman og er nú um fjórðungur af því sem það var í upphafi. Sævar Helgi Bragason bendir á að íbúar á suðvesturhorninu gætu átt von á þreföldu sjónarspili ef léttir til nú síðdegis; glitskýjum, eldgosi og norðurljósum. Hann hvetur fólk til að horfa til himins og jarðar. Á línunni hjá okkur á eftir verður Víðir Reynisson hjá Almannavörnum og við ætlum að ræða við hana um öryggismál og hvernig staðið verður að því að koma í veg fyrir að forvitnir ferðalangar fari sér að voða við gosið.
Þessa dagana standa yfir tökur á sjónvarpsþáttum um lögreglukonuna Huldu Hermannsdóttur en þættinir eru gerðir eftir þríleik Ragnars Jónassonar Dimmu Drunga og Mistri. Leikstjóri þáttaraðanna er hinni kunni sænski leikstjóri Lasse Hallström og sænska stórleikkonan Lena Olin sem jafnframt er eiginkona Lasse leikur Huldu. Lasse hefur sagt frá tökunumá Instagram en sjálfur höfurndur bókanna Ragnar hefur fengið að vera fluga á vegg og fengið að fylgjast með tökunum. Ragnar kemur til okkar á eftir og segir okkur frá þessu ævintýri sem og nýjustu bók sinni Hvítalogn og ýmsu öðru sem hann er að fást við þessa dagana.
Undanfarið hefir nokkuð borið á átakinu Gefum íslensku séns ? íslenskuvænt samfélag. Reglulega hefir það staðið að uppákomum sem allar lúta sama markmiði, að auka vitund fólks, og þá ekki síst móðurmálshafa, fyrir því hvað máltileinkun (það að læra tungumál) felur í sér ásamt því að hvetja fólk til að leggja sitt lóð á vogarskálina við að hjálpa fólki að læra íslensku. Við höfum fjallað um þetta átak hér í Síðdegisútvarpinu og ætlum aðeins að heyra meira af því - hringjum vestur á Ísafjörðu og heyrum í Önnu Sigríði Ólafsdóttur sem oftast er kölluð Annska og hún segir okkur meira af því og jólastemningunni fyrir vestan.
Við heyrum í Einari Stefánssyni kynningarstjóra hjá Pietasamtökunum um Vetrarsólstöðugöngu Pieta samtakanna sem er framundan og góðgerðaruppboð til styrktar samtökunum sem nú er í gangi.
Í Garðaskóla í Garðabæ er að finna tækni - og hönnunarlið sem stefnir á að vera fyrsta íslenska liðið sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu í First Lego í Houston í Texas. Undanfarinn er sá að þau unnu keppni sem kallst First Lego League á Islandi sem Hí stóð fyrir og þaðan fóru þau á lokakeppnina í Danmörku og þess vegna eru þau að undirbúa sig fyrir stóru keppnina í T