Listen

Description

Sjálf viðburðarstýra kvennaverkfallsins, Inga Auðbjörg Straumland verður á línunni á eftir. Munum við heyra í henni um hvernig verkfallið hefur gengið fyrir sig í dag. Engar áhyggjur hlustendur góðir, við fengum formlegt leifi frá henni sjálfri á föstudaginn var.

Í byrjun síðustu aldar tók þjóðin ástfóstri við bílinn, þetta einstaka samgöngutæki sem greiddi götu og létti störf, auk þess að opna landið og veita ferðafrelsi. Bíllinn átti stóran þátt í mótun þéttbýlis á Íslandi og hefur haldið hjólum atvinnulífsins gangandi í meira en öld. Um þetta fjallar ljósmyndabókin Bílar í lífi þjóðar sem hefur að geyma hátt í 900 myndir sem margar hverjar hafa hvergi sést áður. Örn Sigurðsson er höfundur bókarinnar, hann kemur á eftir.

Forsvarsmenn listasafnsins Ars Longa á Djúpavogi leita nú fjármagns til að bæta Vogshús og ríkir bjartsýni á að það muni ganga eftir.En heimastjórn Djúpavogs sendi forsvarsmönnum safnsins bréf fyrir nokkru þar sem kallað er eftir endurbótum á húsinu. Einn af forsvarsmönnunum er listamaðurinn Sigurður Guðmundsson sem verður á línunni frá Djúpavogi og segir okkur meðal annars frá mikilvægi húsins.