Síðdegisútvarpið heilsar á þessum ágæta mánudegi. Á eftir munum við senda út beint frá HM kvenna í handbolta þegar að Ísland og Angóla eigast við. Gunnar Birgisson kemur til okkar og lýsir leiknum í beinni. Þetta er þriðji leikur íslenska liðsins í D riðli og nokkuð ljóst að stelpurnar þurfa að gefa allt í leikinn í dag til að eiga möguleika á að halda áfram í mótinu. Gunnar fer yfir stöðuna með okkur hér fyrir leik.
Um helgina fengum við fréttir af því að pakkasöfnun Kringlunnar færi hræðilega af stað á sama tíma og beiðnum fjölskyldna um aðstoð fyrir jólin fjölgar. Baldvina Snælaugsdóttir markaðsstjóri Kringlunnar kemur til mín á eftir og fer yfir stöðuna með okkur og segir okkur hversvegna þetta átak skipti máli.
Við í Síðdegisútvarpinu fréttum af því að það væri kominn frískápur á Húsavík og við ætlum að hringja norður og heyra í Önnu Soffíu Halldórsdóttur en hún er sú sem stóð í því að koma frískápnum upp.