Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur!
ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun!
- 15 mín upphitun
- 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta
Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt. - Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin.
Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama.
- 15 mín niðurskokk