Listen

Description

Það er loksins komið að því!! 

Við höfum beðið svo lengi eftir því fá hana elsku Karen til okkar í smá spjall um The Last Triumvirate seríuna en við féllum allar kylliflatar fyrir sögunni og karakterunum. Einnig er risastór bónus hvað hún Karen er bara algerlega frábær og einstök kona! 

Við gætum ekki mælt meira með bókunum hennar og höfum verið ansi háværar með það þrátt fyrir að við munum hlaupa upp á esjuna og öskra það áfram þar sem allir og amma þeirra ættu að taka þessar bækur upp og lesa þær. 

Komið með okkur í spjall við frábæra konu um hvernig það er að skrifa rómantasíu, hvernig karakterar verða til og skemmtilegar sögur í kringum hluti og atriði í bókunum.

 

Fyrsti parturinn af viðtalinu kemur út í dag en næsti partur kemur út næsta miðvikudag! 

HVar getið þið fundið Karen? 

 

Insta; karencpmcdermott

heimasíða; karencpmcdermott.com

Facebook; Karen C.P. McDermott, Author

Tiktok; karencpmcdermott_author

 

Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

Insta; tbrlistinn