Listen

Description

Margrét Kristín Blöndal var í haldi ísraelska hersins í nokkra daga eftir að hafa siglt með skipinu The Conscience áleiðis til Gaza ásamt fleiri aðgerðarsinnum.  Tilgangurinn var að færa hinu hrjáða Palestínufólki á svæðinu mat og lyf.  Magga Stína hefur farið fremst í flokki íslenskra mótmælenda gegn þjóðarmorðinu á Gaza svo eftir hefur verið tekið.  Í viðtalinu heyrum við af þessu ferðalagi og ómannúðlegri meðferð Ísraela á tónlistarkonunni.