Hvernig virka stjórnmál á Íslandi? Hvað felur nýr stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar í sér og hver verða áhrif hans á landsmenn? Sanna Magdalena Mörtudóttir og Kristbjörg Eva Andersen Ramos leitast við að skilja nútíma stjórnmál, hlutverk ráðherra og hvað núverandi stjórnarstaða þýðir fyrir okkur íbúana.
Í þættinum verður leitast við að svara því hvernig almenningur getur komið sinni rödd á framfæri og stuðlað að breytingum.
Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!