Fyrsti viðmælandi Veltunnar er Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar í málaflokki heimilislauss fólks með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
Hrafnhildur er kraftmikil og áhugaverð manneskja. Taugarnar liggja til Vestfjarða, hugur og hjarta blómstra í Hlíðunum og eldmóðurinn brennur í vinnunni hjá Reykjavíkurborg.
-
Veltan er hlaðvarp velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Í Veltunni kynnumst við áhugaverðu fólki sem tengist velferðarþjónustu og ræðumm lífshlaup þeirra, fjölbreytta reynslu, faglega þekkingu og verkefni í lífinu.
Umsjónarfólk Veltunnar er Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Arnar Snæberg Jónsson.