Föstudagur 20. febrúar
Vikuskammtur: Vika 8
Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Borgar Magnason tónskáld og bassaleikari, Lína Thoroddsen klippari, Pétur Ben tónlistarmaður og Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandinu og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af falli úr háum söðli, stéttakúgun, illri meðferð á börnum, hótunum um hernað, átökum og ásökunum.