Listen

Description

Þá er loksins komið að því. Nú er lag! Eitt af markverðustu, atkvæðamestu og heilt yfir ferskustu - þó með endalausa snertifleti við allan andskotan - böndum vorra tíma... MASTODON! Og það dugir ekkert minna en að fara yfir meira og minna allt sem þessir jólasveppir hafa gefið út. 
Markmiðið var að fara yfir fyrstu útspil Atlantaveitarinnar knáu til og með Leviathan en djúsinn og aldinkjötið var slíkt að við náðum bara að pækla Remission. Sem þýðir bara meira MASTODON fyrir hlustendur seinna í mánuðinum.
En illa-fyrir-kallaður Birkir og brakandi ferskur Hörður Ólafs köfuðu ofan í fyrstu ár MASTODON, gáfu lögum þeirra einkunnir og ég veit ekki hvað og hvað. 

Sérstakir gestir þáttarins eru Þorsteinn Kolbeinsson tónleikahaldari og allt-í-öllu Kristján ´Breytari´Heiðarsson.

Ný Íslensk hljómsveist, THE INVID, gengur í Leynifélag Stokkið í eldinn! Um er að ræða nýtt verkefni sem runnið er undan rifjum tveggja turna úr Íslenskum þungajaðri. Kristján B. Heiðarsons (Changer, Drungi, Vetur, Kookaveen o.fl.) og Mik Annetts (Under The Church, Kookaveen, Bastard o.fl.). Án þess aðvið getum fullyrt það þá hljómar þessi keyrslusveit eins og viðbragð við glundroða, skeitingarleysi og ofbeldi samtímans. Heyrn er sögu ríkara og eins og alltaf þegar Leynifélagið er annars vegar þá er um áður óútgefið efni sem fær heimsfrumflutning í Stokkið í eldinn. 

Tónlist í þættinum
THE INVID - A Red cancer af The Invid (2025)

Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

 

Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  

Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  

Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.

Luxor er þekkingarhús viðburða.  

Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

SNÆFUGL hlaðvörp