Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Þór Hreinsson mæta með þétthlaðinn hlaðvarpsþátt þessa vikuna. Þeir fara vel yfir frábært gengi KA og Þórs/KA í Pepsi deildunum að undanförnu og rýna í komandi leiki.
Þá heyra þeir í fjölmiðlamógúlnum Tómasi Þór Þórðarsyni sem kynnir okkur fyrir Vladimir Tufegdzic nýjasta leikmanni KA auk þess sem hann fer yfir málin í Pepsi deildinni.
Að lokum mætir Callum Williams leikmaður KA í skemmtilegt spjall þar sem hann ræðir síðustu leiki sem og upplifun sína af nýliðnu HM.