Listen

Description

Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram og að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni og Ágúst Stefáns yfir leiki KA og Þórs/KA í fótboltanum sem og komandi lokasprett í Pepsi deildunum. Guðmann Þórisson fyrirliði KA mætir einnig í spjall.

Norðlenska Greifamótið í handboltanum fór fram um síðustu helgi og er handboltinn tekinn föstum tökum með aðstoð Jónatans Magnússonar þjálfara KA/Þórs.

Að lokum kíkir Aðalbjörn Hannesson yfirþjálfari yngri flokka KA í knattspyrnu og fer yfir flott sumar hjá yngri iðkendum KA.