Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram og að þessu sinni fara þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Ágúst Stefánsson yfir stöðuna hjá Þór/KA og KA í fótboltanum, 4 brons í júdó á Norðurlandamótinu og landsliðsstelpurnar okkar í handboltanum.
Sigurður Skúli Eyjólfsson fyrrum leikmaður KA í knattspyrnu kemur í heimsókn og fer yfir ferilinn, muninn á aðstöðunni í dag og þegar hann var að spila og margt fleira.